Efni síðunnar er ætlað einstaklingum 18 ára og eldri. Vinsamlegast staðfestu aldur þinn til að halda áfram.
We sell age restricted products, so you won't be permitted to purchase from our store.
Cart drawer
Verðskrá
Verðskrá Tattoo Setursins
Þegar þú bókar hjá okkur bókarðu vinnutíma húðflúrarans. Innifalið er undirbúningur, hönnun, húðflúrun og frágangur. Verðið endurspeglar alla vinnuna sem fer í verkefnið.
Húðflúrari
Bókaður vinnutími · verð á klst.
Nemi
12.500 kr.
Útskrifaður húðflúrari
15.000 kr.
Reyndur húðflúrari
18.500 kr.
Öll verð eru með VSK.
Hvernig skiptist tíminn?
Heill dagur er 8 klukkustundir í heild. Til dæmis geta 2 klukkustundir farið í undirbúning og frágang og 6 í húðflúrun. Önnur verkefni geta þurft 3 klukkustundir í undirbúning og frágang og 5 í húðflúrun.
Almennt er miðað við 2 klst í undirbúningi á heilum degi
Hálfur dagur er 4 klukkustundir í heild. Þar getur skiptingin verið 1 klukkustund í undirbúning og frágang og 3 í húðflúrun, eða 2 klukkustundir í hvort.
Almennt er miðað við 1 klst í undirbúningi á hálfum degi
Ath. Skiptingin fer eftir verkefninu og vinnulagi húðflúrarans. Verð bókunarinnar breytist ekki eftir því hversu stór hluti tímans fer undir nálina.
Pásur eru hluti af bókuðum tíma
Matar- og kaffipásur eru hluti af vinnudeginum og innifaldar í bókuðum tíma. Húðflúrarinn þarf einnig að taka stutt hlé, um 2–3 mínútur á klukkustundar fresti, til að standa upp, teygja úr sér og hlífa líkamanum við langvarandi vinnustellingum.
Greiðslur
Í bókunarferlinu geturðu valið hvort þú....
færð reikning fyrir stofugjaldinu eða heildargjaldi verkefnisins Reikningurinn birtist í heimabankanum þínum.
Greiðir með korti / reiðufé.
1. Bókun og staðfestingargjald
Við bókun húðflúrs greiðist staðfestingargjald sem nemur 30% af heildarverði bókaðrar þjónustu, þó að lágmarki 10.000 kr.
Heildarverð tekur mið af vinnutíma húðflúrarans, þar með talið þeim undirbúningstíma sem er innifalinn í bókaðri þjónustu.
Staðfestingargjaldið er hluti af heildarverði húðflúrsins og dregst frá lokagreiðslu.
2. Aukaþjónusta og vörur
Valdar aukaþjónustur og aukavörur greiðast að fullu við bókun, ásamt staðfestingargjaldinu.
Þjónustuviðbætur og vörur eru sundurliðaðar sérstaklega í greiðsluyfirliti.
3. Greiðsluleiðir
Viðskiptavinir geta valið um þær greiðsluleiðir sem boðið er upp á í bókunarkerfinu, svo sem að:
Greiða staðfestingargjaldið og viðbætur strax og eftirstöðvar síðar.
Greiða alla upphæðina strax.
Óska eftir greiðslukröfu í heimabanka fyrir eftirstöðvum.
Nota gilt gjafabréf samkvæmt skilmálum þess.
Bókun telst staðfest þegar tilskilin greiðsla hefur borist eða önnur samþykkt greiðslutrygging liggur fyrir.
4. Afbókun með meira en 48 klst. fyrirvara
Viðskiptavinir eru beðnir um að tilkynna afbókun eða breytingu á bókuðum tíma með að minnsta kosti 48 klukkustunda fyrirvara.
Endurgreiðsla eða færsla staðfestingargjalds fer samkvæmt almennum afbókunarskilmálum stofunnar og lögbundnum réttindum viðskiptavinar.
5. Afbókun innan 48 klst. vegna ófyrirséðra atvika
Við skiljum að alvarleg veikindi, áföll og aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður geta komið upp með skömmum fyrirvara.
Þegar afbókun berst innan 48 klukkustunda vegna slíkra aðstæðna getur sérstök endurgreiðsluregla átt við:
Ef samanlögð fjárhæð greidds staðfestingargjalds og gjaldgengra þjónustuviðbóta er yfir 50.000 kr., endurgreiðum við 50% af þeirri samanlögðu fjárhæð, að uppfylltum skilyrðum reglunnar.
Reglan gildir um:
Greitt staðfestingargjald.
Gjaldgengar, fyrirframgreiddar þjónustuviðbætur.
Almenn vörukaup falla ekki undir þessa sérstöku endurgreiðslureglu og fara eftir þeim skilmálum og lögum sem um þau gilda.
Beiðni um endurgreiðslu skal berast eins fljótt og aðstæður leyfa. Tattoo Setrið kann að óska eftir viðeigandi upplýsingum til að meta hvort skilyrði reglunnar séu uppfyllt.
Þessi sérregla takmarkar ekki lögbundin réttindi viðskiptavina.
6. Verð og virðisaukaskattur
Öll birt verð til einstaklinga eru með virðisaukaskatti þar sem hann á við.
Greiðsluyfirlit sýnir heildarverð, staðfestingargjald, valdar viðbætur, virðisaukaskatt og eftirstöðvar.
Virðisaukaskattur er sundurliðaður samkvæmt gildandi skatthlutfalli viðkomandi vöru eða þjónustu.
7. Samþykki skilmála
Áður en bókun er staðfest þarf viðskiptavinur að staðfesta að hann hafi kynnt sér og samþykkt greiðslu- og afbókunarskilmála Tattoo Setursins.
Samþykki bókunarskilmála kemur ekki í stað sérstaks upplýsts samþykkis fyrir framkvæmd húðflúrunar.