Tattoo Setrið

Stofnað 2021

Velkomin á nýja heimasíðu Tattoo Setursins, hjarta stofunnar.

Hér færðu allar upplýsingar beint í æð og hjartað pumpar skilaboðunum þínum til rétta aðilans.

Traust og fagleg þjónusta skiptir okkur hjartans máli.

Welcome to the new Tattoo Setrið website, the heart of our tattoo shop.

Here you’ll find everything you need to know.

Our aim is to provide professional service.

Bóka / book
Hér finnurðu gagnlegar upplýsingar, svör við algengum spurningum og getur bókað húðflúr eða ráðgjöf
Gullna hjartað sem slær á forsíðunni endurspeglar lífið á stofunni og fágaðan stíl hennar
Góð og traust þjónusta er það sem við stöndum fyrir og setjum í fyrsta sæti
Ný heimasíða Tattoo Setursins

Algengar spurningar

Hvernig er tímagjaldinu háttað?

Við erum með þrjú tímagjöld. Verðin eru með VSK á hverja bókaða klukkustund.

  • Nemi: 15.000 kr.
  • Útskrifaður húðflúrari: 20.000 kr.
  • Húðflúrari með meiri reynslu: 25.000 kr.

Bókunin miðast við tímann þinn með húðflúraranum. Undirbúningur er hluti af vinnunni og getur farið fram fyrir tímann eða samdægurs.

  • Heill dagur: 6 bókaðar klst. og um 2 klst. í undirbúning.
  • Hálfur dagur: 3 bókaðar klst. og um 1 klst. í undirbúning.
  • Stakur tími: 1 bókuð klst. og um 20–30 mín. í undirbúning.

Dæmi um heilan dag. Sex bókaðar klukkustundir á 25.000 kr. kosta samtals 150.000 kr. með VSK. Miðað við átta vinnustundir með undirbúningi jafngildir það 18.750 kr. með VSK á vinnustund, eða um 15.121 kr. án VSK. (Greiðslan skiptist í VSK til ríkisins, greiðslu til húðflúrarans og leigu fyrir aðstöðuna á stofunni.)

Þetta eru viðmið. Sumir húðflúrarar undirbúa verkið með þér samdægurs og aðrir vinna undirbúninginn fyrirfram.

Afhverju eru artistar með mismunandi verð?

Tímagjaldið endurspeglar reynslu húðflúrarans og vinnuna sem hann hefur lagt í að þróa færni sína. Á Tattoo Setrinu eru þrjú verðþrep.

  • Reyndur húðflúrari · 25.000 kr. á klst. Hefur margra ára reynslu, hefur þróað sinn stíl og er vanur að skipuleggja og vinna stærri eða flóknari verkefni.
  • Útskrifaður húðflúrari · 20.000 kr. á klst. Hefur lokið námi í húðflúrun, vinnur sjálfstætt og byggir áfram upp reynslu og sérhæfingu.
  • Nemi · 15.000 kr. á klst. Er enn í námi, vinnur undir leiðsögn og tekur að sér verkefni sem hæfa færni hans á hverjum tíma.

Öll tímagjöld eru með VSK.

Get ég bókað ráðgjöf áður en ég ákveð mig?

Já. Við förum yfir hugmyndina þína, stærð, staðsetningu og næstu skref. Bóka ráðgjöf

Get ég valið ákveðinn húðflúrara og haft beint samband við hann?

Já. Undir „Fólkið á stofunni“ geturðu lesið um listamennina, skoðað verk þeirra og fundið netföngin þeirra. Ef þú ert óviss um hvern á að velja hjálpum við þér að finna rétta aðilann.

Gerir stofan húðflúr á einstaklinga yngri en 18 ára?

Já, í sumum tilvikum. Húðflúrarinn þarf að samþykkja verkefnið fyrirfram og forsjáraðili þarf að mæta með í tímann og skrifa undir samþykki. Hafðu samband áður en þú bókar.

Er húðin mismunandi eftir fólki og aldri?

Já. Þykkt, teygjanleiki og áferð húðar eru mismunandi eftir einstaklingi, aldri og staðsetningu á líkamanum. Það getur haft áhrif á hversu fínar línurnar geta verið og hvernig smáatriðin sjást. Húðflúrarinn metur húðina og ráðleggur um stærð, staðsetningu og útfærslu.

Er hægt að kaupa gjafabréf?

Hafðu samband við okkur til að fá upplýsingar um gjafabréf, upphæðir og afhendingu.

Hver er ábyrgð stofunnar og listamannsins?

Stofan sér um aðstöðuna og aðstoðar við bókanir. Húðflúrarinn sér um hönnun, framkvæmd og leiðbeiningar um umhirðu. Ef eitthvað kemur upp geturðu haft samband við stofuna svo við getum farið yfir málið með þér og húðflúraranum.

Við mælum með að greiða í gegnum félagið sem rekur Tattoo Setrið, í posa stofunnar, á vefsíðunni eða með millifærslu á bankareikning stofunnar. Þá getum við flett greiðslunni upp og afgreitt endurgreiðslu þegar hún á við. Ef þú greiddir húðflúraranum beint skaltu hafa samband við hann vegna greiðslunnar.

Hvað þarf ég að vita um gróanda nýs húðflúrs?

Húðflúrarinn þinn gefur þér leiðbeiningar um umhirðu miðað við umbúðirnar sem voru notaðar. Hafðu samband ef eitthvað er óljóst eftir tímann.

Get ég fengið ráðgjöf um cover-up eða lasermeðferð?

Já. Við skoðum gamla húðflúrið með þér og ræðum hvort hægt sé að flúra yfir það eða hvort lýsing með laser gæti hjálpað.

Hvar finn ég fatnað og krem frá Tattoo Setrinu?

Í vefverslun Tattoo Setursins. Nánari upplýsingar eru á hverri vörusíðu.