Featured banner image
Yfirheyrsla
Media image 1

Hver er Jói?

Hvaðan kemur þú og hvað ertu í dag? Ég fæddist í sveit sem kallast í dag Mosfellsbær og bjó þar samfleytt í 27 ár

Ertu í sambandi og ertu leitandi? Neibb og Neibb, er í sambands "burnout´i" lol

Hvernig lá leiðin að húðflúrinu? Eftir að vera lost í lífinu í 30 ár og búinn með 2 háskóla gráður þá var ákveðið moment í lífinu mínu sem kom mér þangað. þá var ég var atvinnulaus, bjó í foreldra húsi, lost og einhleypur. Ég lá upp í rúmi þunnur að horfa á Ink master þættina...

Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu? Í dag er það börnin mín sem ég lifi fyrir og elska mest

Ertu rómantísk sál? Þótt ég er mjög kaldhæðinn og get látið eins og fáviti, þá get ég alveg verið það já, held ég... Ég var það allavegana einu sinni

Ertu tilfinningavera? jájá

Mest pirrandi? Prentarar og tæknilegir erfiðleikar

Þrír kostir? Góður pabbi Traustur og Ævintýragjarn

Þrír ókostir? Meðvirkni, Meðvirkni og Meðvirkni

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frítímanum? Ferðast innanlands og utanlands

Hvað er það besta við að vera húðflúrari? Kynnast fólki, frelsi og gleðja fólk með flúri

Mestu mannleg mistök mannkynsins? Skólakerfið

AI? Frábært tól sem mun einfalda margt í lífinu, Upplýsinga banki og aðstoðarmaður sem er alveg hægt að nýta sér vel til framtíðar

Notað þú AI í vinnunni þinni? Já, fyrir mér er þetta eins og 100.000 aðstoðarmenn sem sem aðstoða mig við tillögur og getur gert húðflúr ennþá betri en áður. Gervigreindin þarf að hafa leiðbeinanda með reynslu til að útkoman verður rétt. Fryri mér er þetta hjálpartól eins og Photoshop, Pinterest osfr.

Best í heimi? Að eiga börn og lifa fyrir þau

Skilaboð til annara? Ekki dæma og hrósa meira ;)

Portfolio