Sjálfstæðir húðflúrarar / Verktakar / Starfsmenn og Nemar
Tattoo Setrið er vinnustaður þar sem geta starfað sjálfstætt starfandi húðflúrarar (verktakar), launaðir starfsmenn og nemar, eftir því sem við á hverju sinni.
- Sjálfstætt starfandi húðflúrarar (verktakar) bera sjálfir faglega og lagalega ábyrgð á þeirri þjónustu sem þeir veita, þar á meðal hönnun, framkvæmd, ráðgjöf, eftirmeðferð og samskiptum við viðskiptavini vegna lagfæringa eða kvartana.
- Tattoo Setrið sér um rekstur húsnæðis, aðstöðu, hreinlætisstaðla og sameiginlega þjónustu, en ber ekki ábyrgð á faglegum ákvörðunum eða framkvæmd sjálfstætt starfandi húðflúrara.
- Ef viðskiptavinur óskar eftir lagfæringu (touch-up), breytingu eða vill leggja fram kvörtun vegna húðflúrs, skal hafa samband við þann húðflúrara sem framkvæmdi verkið. Tattoo Setrið getur aðstoðað við að koma aðilum í samband ef þess er óskað.
- Starfsmenn Tattoo Setursins starfa samkvæmt ráðningarsamningi við fyrirtækið. Þegar þjónusta er veitt af starfsmanni ber Tattoo Setrið ábyrgð í samræmi við gildandi lög og reglur.
- Nemar starfa eingöngu undir leiðsögn og eftirliti reynds húðflúrara. Viðskiptavinur er alltaf upplýstur fyrirfram ef nemi kemur að framkvæmd húðflúrs og hefur fullt frelsi til að hafna slíkri þjónustu.
- Bókanir sem fara fram í gegnum heimasíðu Tattoo Setursins eða opinbera samfélagsmiðla stofunnar eru skipulagðar af Tattoo Setrinu. Greiðslur skulu fara samkvæmt þeim greiðsluleiðum sem viðskiptavini eru kynntar við bókun eða á stofunni.
- Með því að staðfesta bókun og undirrita samþykkisyfirlýsingu staðfestir viðskiptavinur að honum sé ljóst hvort þjónustan sé veitt af sjálfstætt starfandi verktaka, starfsmanni eða nema og samþykkir þau ábyrgðarskilyrði sem eiga við um viðkomandi þjónustuaðila.

