
Nýr rekstrarstjóri tekur til starfa hjá Tattoo Setrinu
Við hjá Tattoo Setrinu höfum ráðið rekstrarstjóra sem tekur til starfa í desember. Ráðningin er mikilvægt skref í uppbyggingu stofunnar. Okkur fannst tímabært að fá manneskju í teymið sem hefur yfirsýn yfir daglegan rekstur og fylgir eftir þeim fjölbreyttu verkefnum sem fylgja því að reka húðflúrstofu.
Með nýjum rekstrarstjóra viljum við skapa meiri tíma fyrir húðflúrara stofunnar til að sinna hverjum viðskiptavini vel, allt frá fyrsta samtali þar til verkinu er lokið. Við hlökkum til að taka á móti nýjum hugmyndum og vinna saman að því að bæta þjónustuna og auka gæðin í öllu okkar starfi.

