
Allt á einum stað!
Ný heimasíða Tattoo Setursins
Nýtt útlit, betra aðgengi að upplýsingum og einfaldari bókanir.
Það var kominn tími á breytingar hjá Tattoo Setrinu!
Við höfum unnið hörðum höndum að því að endurhanna og uppfæra heimasíðu stofunnar með eitt markmið í huga: Að gera allar helstu upplýsingar um húðflúr og þjónustu stofunnar aðgengilegar á einum stað.
Hvort sem þú ert að undirbúa þitt fyrsta húðflúr eða hefur heimsótt okkur margoft, viljum við að þú finnir auðveldlega þær upplýsingar sem þú þarft.
Einfaldara, skýrara og þægilegra
Við höfum lagt sérstaka áherslu á að gera heimasíðuna notendavæna, bæði fyrir vana og óvana.
Á síðunni verður annars hægt að:
-
Kynnst listamönnum stofunnar og skoðað mismunandi húðflúrstíla.
-
Skoðað verð og þjónustu til að átta þig betur á kostnaði.
-
Fengið upplýsingar og ráðgjöf um undirbúning, húðflúrferlið og eftirmeðferð.
-
Verslað í vefversluninni okkar, þar sem meðal annars er hægt að kaupa húðflúrkrem, fatnað og gjafabréf.
-
Bókað tíma hjá listamönnum stofunnar þegar nýja bókunarkerfið verður tilbúið.
Bókunarkerfið opnar á næstu dögum!
Við erum á fullu að leggja lokahönd á uppsetningu heimasíðunnar og tengja nýja bókunarkerfið við þjónustu listamannanna.
Á næstu dögum stefnum við að því að opna fyrir beinar bókanir í gegnum heimasíðuna.
Þá verður hægt að skoða lausa tíma, velja listamann og bóka heimsókn á einfaldari og þægilegri hátt.
Þangað til er áfram hægt að hafa samband við okkur með fyrirspurnir og bókanir.
Heimasíðan er hjarta stofunnar
Nýja heimasíðan er mikilvægur hluti af þeirri þróun sem nú á sér stað hjá Tattoo Setrinu.
Samhliða endurbótum á aðstöðu og búnaði viljum við bæta upplýsingagjöf, þjónustu og upplifun viðskiptavina frá fyrstu samskiptum.
Við munum halda áfram að bæta við upplýsingum og nýjungum á næstu vikum og tökum fagnandi á móti ábendingum.
Markmiðið er að þú getir fundið svörin, fengið ráðgjöf og bókað þitt næsta húðflúr – allt á einum stað.
Tattoo Setrið – Meira en bara húðflúr.
Established 2021.

