Reglur stofunnar og ábyrgð
Reglur stofunnar og ábyrgð
Það skiptir okkur hjartans máli að þú vitir við hverju má búast. Skýr samskipti, traust og sameiginlegur skilningur eru undirstaða góðrar upplifunar hjá Tattoo Setrinu.
Aldurstakmark
Almennt er aldurstakmark hjá okkur 18 ár. Undantekningar eru metnar sérstaklega og þurfa samþykki húðflúrarans fyrir bókun. Sé einstaklingur yngri en 18 ára þarf forsjáraðili að mæta með, staðfesta forsjá og undirrita samþykki. Samþykki forsjáraðila tryggir ekki að verkefnið verði tekið að sér.
Bókanir og afbókanir
Veldu tíma sem hæfir verkefninu. Ef þú ert óviss um stærð, útfærslu eða tímalengd mælum við með ráðgjöf áður en þú bókar.
Afbóka þarf með að minnsta kosti 48 klukkustunda fyrirvara til að fá staðfestingargjaldið endurgreitt. Endurgreiðsla fer á sama greiðslumáta og notaður var við bókun.
Verð og bókaður vinnutími
Bókaður vinnutími nær yfir undirbúning, hönnun, húðflúrun, frágang og pásur. Skipting tímans fer eftir verkefninu og vinnulagi húðflúrarans. Tíminn undir nálinni er því aðeins hluti af bókuninni. Nánari upplýsingar eru í verðskránni.
Breytingar á umfangi verkefnis og mögulegum viðbótarkostnaði skulu ræddar við þig áður en haldið er áfram.
Hönnun og samþykki
Áður en húðflúrun hefst förum við yfir hönnun, stærð og staðsetningu með þér. Skoðaðu sérstaklega stafsetningu, nöfn, dagsetningar og önnur persónuleg atriði. Láttu vita ef þú ert óviss eða vilt breyta einhverju áður en verkið hefst.
Ábyrgð stofunnar og húðflúrarans
Stofan sér um aðstöðuna og aðstoðar við bókanir og samskipti. Húðflúrarinn ber faglega ábyrgð á hönnun og framkvæmd verksins og veitir leiðbeiningar um umhirðu.
Ef eitthvað kemur upp skaltu hafa samband við okkur. Við förum yfir málið með þér og viðkomandi húðflúrara og leitum viðeigandi lausnar.
Undirbúningur og umhirða
Mættu edrú og upplýstu húðflúrarann um atriði sem gætu haft áhrif á framkvæmdina eða gróandann. Húðflúrarinn getur frestað tíma ef aðstæður henta ekki til að framkvæma verkið.
Fylgdu leiðbeiningunum sem þú færð um umhirðu og hafðu samband ef eitthvað er óljóst. Húð og gróandi eru einstaklingsbundin og geta haft áhrif á lokaútlit húðflúrsins.
Greiðslur og reikningar
Í bókunarferlinu geturðu valið reikning í heimabanka fyrir stofugjaldinu eingöngu eða heildargjaldi verkefnisins. Ef aðeins stofugjaldið er innheimt greiðist afgangurinn samkvæmt samkomulagi við húðflúrarann.
Geymdu reikninga og greiðslukvittanir. Ef greiðsla fór beint til húðflúrarans þarf að beina erindi vegna hennar til hans; stofan getur aðstoðað við samskipti.
Athugasemdir og úrlausn mála
Ef þú hefur athugasemdir við þjónustuna eða niðurstöðuna biðjum við þig að hafa samband sem fyrst og senda lýsingu ásamt myndum þegar við á. Við metum hvert mál sérstaklega og ræðum næstu skref með þér.
Reglur stofunnar takmarka ekki lögbundin réttindi þín sem neytanda.

